Auðveldur sigur gegn Skallagrími, 94-67
Það var ánægjulegt að sjá til okkar manna í kvöld, því þeir hafa átt það til að detta niður á lágt plan milli stórleikja, en það er jú nóg af þeim um þessar mundir. Í kvöld var Gunnar Einarsson ekki á leikskýrslu og Maggi lék aðeins 7 mínútur. En það kom ekki að sök í þetta skiptið þar sem aðrir leikmenn tóku sig á og voru ákveðnir. Engu máli skipti hverjir voru inná vellinum því liðið var léttleikandi og hafði yfirburði allan leikinn. Fyrsti leikhluti var reyndar í jafnvægi en svo sigu okkar menn fram úr og juku forskotið hægt og bítandi. Í hálfleik var munurinn 13 stig, 46-33 og í lokin var hann orðinn 27 stig, 94-67.
Arnar og Jonni voru mjög ferskir í leiknum. Arnar setti 17 stig og gerði m.a. fjórar þriggja, Jonni skoraði 15 og tók 8 fráköst. Nick og Tony gerðu sín 18 stigin hvor og voru auk þess duglegir í fráköstunum, Tony tók 11 og Nick 16. Það er athyglisvert að Nick virðist vera öflugri í fráköstunum í ár en í fyrra.
Gunni Stef og Davíð áttu fínar innkomur, Gunni setti 10 stig, en Davíð gerði 4 og gaf 4 stoðsendingar í sínum 200. leik fyrir félagið. Í því tilefni var honum afhent 200-leikja merki félagsins og blómvöndur af Birgi Bragasyni, varaformanni deildarinnar. Leiktíma var dreift jafnt á leikmenn og gaman var að sjá Jón Gauta Jónsson fá tækifæri sem hann nýtti vel, setti m.a. niður gott stökkskot.
Skallagrímsmenn virtust ekki hafa mikla trú á eigin getu í þessum leik. Þeir hafa farið vel af stað í vetur, en samt er mikill munur á leik þeirra á heimavelli og útivelli. Á heimavelli geta þeir unnið hvern sem er, en á útivelli vantar greinilega sjálfstraustið, a.m.k. bar ekki mikið á því í kvöld. Liðið er engu að síður ágætt, en í kvöld reyndu þeir fullmikið af 3ja stiga skotum úr misgóðum færum. Þeir settu aðeins niður 4 af 27 og í fyrri háfleik aðeins 1 af 17.
Innan tíðar verður tölfræði leiksins hér.
Að þessum leik loknum fá menn hvíld um helgina en síðan hefst svaka törn. Fimm leikir á 10 dögum, tveir í Evrópukeppninni, einn í Bikarnum og síðan deildarleikir gegn Njarðvík og Fjölni. Af þessum fimm leikjum er sá mikilvægasti n.k. þriðjudag, en þá sækir Keflavík Bakken Bears heim í Árósum í Danmörku. Sá leikur er nánast hreinn úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins.