Fréttir

Auðveldur sigur hjá stúlkunum gegn Stjörnunni
Karfa: Konur | 19. september 2013

Auðveldur sigur hjá stúlkunum gegn Stjörnunni

Keflavíkurstúlkur unnu auðveldan 35-83 sigur á Stjörnunni í Lengjubikar kvenna í gær en leikurinn var í Garðabæ. Stjörnusútlkur, sem leika í 1. deild áttu aldrei möguleika, og fór það svo að leiktíma Keflavíkurstúlkna var skipt tiltölulega jafnt. Byndís Guðmundsdóttir var stigahæst með 15 stig, 8 fráköst og 7 stolna bolta, Birna Valgarðsdóttir var með 13 stig og Porsche Landry með 10.