Fréttir

Körfubolti | 6. október 2004

Auðveldur sigur í fyrsta leik hjá stúlkunum

Keflavíkurstúlkur byrjuðu vel í kvöld í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu. Titilvörnin hófst með látum og Keflavík náði fljótt forskoti. Njarðvíkurstúlkur náðu þó að minnka muninn í eitt stig í öðrum leikhluta, en með góðum varnarleik náði Keflavík 18 stiga forskoti fyrir hlé. Í seinni hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt og endaði leikurinn með 32ja stiga sigri Keflavíkur, 81-49.

Reshea lék feykivel og skoraði m.a. 24 stig. Rannveig gerði13 stig og María Ben 10, en annars dreifðist stigaskorið milli leikmanna. Sverrir þjálfari gat notað alla 12 leikmenn sína og fengu allar stúlkurnar að spreyta sig töluvert.

Tölur úr leiknum má finna hér.

Birna Valgarðsdóttir sat á bekknum og gat ekki leikið sökum fingurbrots sem þarf smá tíma til viðbótar til að gróa, líklega eina eða tvær vikur. Hún verður örugglega ekki með í næsta leik sem verður eftir viku, miðvikudaginn 13. október gegn Haukum.