Fréttir

Körfubolti | 6. febrúar 2005

Auðveldur sigur Keflavíkur á Haukum. Maggi í miklu stuði.

Það má seigja að leikurinn í kvöld hafi verið leikur katarins að músinni, svo mikil var munurinn á liðunum. Keflavík náði mjög fljót góðri forustu sem þeir létu ekki af hendi. Magnús Gunnarsson fór fyrir sínum mönnum með góðri baráttu í vörn ásamt því að skora 4 þrista í fyrri hálfleik. Nick, Arnar, Sverrir og Jonni léku allir vel í hálfleiknum en Tony hafði hægt um sig í leiknum og var kominn útaf með 5 villur í lok 3 leikhluta.  Staðan í hálfleik 35-51 okkar mönnum í hag. Haukar réðu illa við pressuvörnina sem Keflavík beiti á köflum í leiknum og stálu Keflavíkingar ófáum boltum úr höndum þeirra. Stundum komust Haukamenn varla yfir miðju, enda virtist liðið hálfþreytt og ekki tilbúið í þennan leik. Allir 12 leikmenn Keflvíkur fengu að spreyta sig í þessum leik og bekkurinn spilaði þónokkuð margar mínutur í leiknum. Eins og fyrr sagði fyrirhafnarlaus sigur hjá Keflavík og bestu menn Maggi, Nick og Arnar í annas jöfnu liði í kvöld. Stigahæstir Maggi með 29 stig ( 7 þristar), Arnar 13 ( 100% skotnýting inn í teig), Nick 12 stig( 10 stoðsendingar) og Jonni 10 stig. Lokastaða 79 - 104. Tölfræði úr leiknum hér Haukar - Keflavík

Önnur úrslit kvöldsins voru Njarðvík - Skallagrímur 76-66 og Fjölnir - Hamar/Selfoss 97-96. Keflavík er með 26 stig á toppnum eftir 16 leiki, Snæfell með 24 eftir 16 leiki og Njarðvík og Fjölnir með 24 eftir 17 leiki.