Auðvelt gegn Ármanni
Í kvöld lék Keflavík gegn Ármanni í fyrri umferð 16 liða úrslita í Hópbílakeppninni. Ármann, þetta forna stórveldi, er ekki svipur hjá sjón og gátu leikmenn þeirra ekki veitt okkar mönnum keppni, ekki frekar en kannski búist var við. Lítið er um leikinn að segja annað en að Keflavík vann 73ja stiga stórsigur, 127-54, og er því nokkuð öruggt áfram í 8 liða úrslitin, jafnvel þótt seinni leikurinn sé eftir. Hann verður leikinn á fimmtudag.
Ármann var stórveldi í körfunni á seinni hluta áttunda áratugarins og eiga heiðurinn að því að hafa flutt inn fyrsta Kanann, en það var Jimmy nokkur Rogers sem kom til landsins árið 1975, en "hinn Kaninn" það árið var Curtis Carter í KR. Jimmy Rogers átti verulegan þátt í því að Ármenningar urðu Íslandsmeistarar 1976, í eina skiptið í sögu félagsins. Rogers var ansi góður leikmaður, en frægasti kappi þeirra Ármenninga var þó tvímælalaust Danny Shouse sem skipti síðan yfir í Njarðvík og varð tvöfaldur meistari með Njarðvíkingum, 1981 og 1982. Sá skoraði hvorki meira né minna en 40,0 stig að meðaltali árið veturinn 1980-81. Það er merkilegt afrek og enn merkilegra fyrir þá staðreynd að hann skoraði mest úr langskotum, en á þeim tíma var engin þriggja stiga lína!
En hvað um það, nú er Ármann í fyrstu deild og reynir að byggja upp til framtíðar. Þeir koma til Keflavíkur á fimmtudaginn og fá eflaust góðar móttökur í Sláturhúsinu.