Fréttir

Körfubolti | 20. apríl 2007

Aukaaðalfundur KKDK á fimmtudag

Aukaaðalfundur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður haldinn á fimmtudag í félagsheimili okkar K-húsinu. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.00

Heimilt er stjórn deildar að boða til aukaaðalfundar deildar að fengnu leyfi aðalstjórnar. Til aukaaðalfundar skal boða á sama hátt og til aðalfundar.

Dagskrá aukaaðalfundur skal vera sem hér segir:

23.gr.

1. Fundarsetning
2.a) Kosinn fundarstjóri.
   b) Kosinn fundarritari.
3. Stjórnarkjör
4. Milliuppgjör kynnt
5. Fundarslit

Félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Stjórn KKDK