Fréttir

Körfubolti | 2. september 2006

Bæjarstjórinn vígði nýja körfuboltavöllinn

Bæjarstjórinn gerði fyrstu körfuna

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, vígði í dag nýjan og glæsilegan körfuboltavöll við Holtaskóla í Reykjanesbæ. Völlurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á landinu og voru þeir Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, og Tómas Tómasson í broddi fylkingar við uppsetningu vallarins.

Fjöldi manns lagði leið sína við Holtaskóla í dag og fylgdist með þegar bæjarstjórinn tók fyrsta skotið. Árni brenndi af opnunarskotinu en rétt eins og körfuboltaliðin í bæjarfélaginu lét Árni ekki deigan síga, tók sitt eigið frákast og lagði boltann ofan í körfuna með snyrtilegu sniðskoti.

Steinþór Jónsson, formaður Ljósanætur, og Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta-, og tómstudaráðs Reykjanesbæjar voru meðal gesta við opnunina og sýndu þá körfuboltatakta sem þeir hafa yfir að ráða.

Þegar Árni Sigfússon hafði lokið við opnunarksotið fengu gestir að spreyta sig á þessum glæsilega velli sem hannaður er af bandaríska fyrirtækinu Sport Court.

vf.is