Fréttir

Bæta Keflavíkurstúlkur 13. bikarnum í safnið?
Karfa: Konur | 14. febrúar 2013

Bæta Keflavíkurstúlkur 13. bikarnum í safnið?

Eins og öllum Keflvíkingum ætti að vera orðið ljóst munu Keflavíkurstúlkur spila við Val í úrslitum Poweradebikarsins í Laugardalshöll nk. laugardag. Leikurinn hefst kl. 13.30 en með sigri geta Keflavíkurstúlkur bætt 13. bikartitlinum í troðfullt bikarsafn liðsins. Keflavíkurstúlkur hafa samtals leikið 19 bikarúrslitaleiki og þekkja því betur að sigra í slíkum leikjum en að tapa. Síðasti sigur var árið 2011. Valsstúlkur hafa hins vegar aldrei orðið bikarmeistarar og gætu því, ef allt fer á versta veg, unnið sinn fyrsta bikarmeistaratitil.

Forsalal miða verður í Toyotahöllinni í dag frá kl. 18.00 - 19.00, en 500 kr. ódýrara er að kaupa miða í forsölu en við innganginn á laugardag. Fullorðnir greiða 1500 kr. í forsölu en börn 12 ára og yngri fá frítt.

Mynd: Karfan.is / Keflavíkurstúlkur urðu síðast bikarmeistarar árið 2011.