Fréttir

Körfubolti | 1. desember 2004

Bakken - Reims

Leikið var í okkar riðli í Bikarkeppni Evrópu í kvöld.  Það voru Frakkarnir í Reims sem heimsóttu Bakken Bears til Danmerkur.  Bakken hafði betur í jöfnum leik 73 - 70.  Þessi úrslit þíða að við erum komnir niður í annað sætið og Bakken í það fyrsta.  Bakken er  búið að leika 5 leiki en Keflavík 4.  Stigahæstur hjá Bakken var Sören Age Hansen með 20 stig  og  Jeff Schiffner skoraði 14 stig.  Big Chris skoraði 11 stig og tók 6 fráköst en lék aðeins í 18 mínutur. Lang stigahæstur hjá Reims var besti leikmaður þeirra Ryan Fletcher með 29 stig. Eins og '' Ark '' talar um á spjallinu  þá byrjuðu Reims betur pressuðu stíft á Danina þannig að þeir voru í tómu basli að koma boltanum fram enn um leið og vörnin dalaði komust bakkarnir yfir og höfðu yfirhöndina þrátt fyrir að Reims voru alltaf skammt undan.

 

Jeff Schiffner átti góðan leik fyrir Bakken í kvöld.

Conference West Qualifying Round
GROUP A
1. Bakken Bears 3/2 8
2. Keflavik SC 3/1 7
3. Reims Champagne Basket 1/4 6
4. CAB Madeira 2/2 6

                                 

                                                                               
                                           

.
.