Fréttir

Körfubolti | 1. apríl 2004

BARÁTTAN UM ÍSLAND hefst í dag

Jæja kæru körfubolta-fans, þá hefst BARÁTTAN UM ÍSLAND milli tveggja bestu félagsliða landsins, Deildarmeistara Snæfells og Íslands- og Bikarmeistara Keflavíkur. Það fer vel á því að þessi tvö félög berjist um þann stóra, því að öðrum ólöstuðum hafa þau heilt yfir sýnt besta boltann í vetur, Snæfell í deildinni og Keflavík í Evrópu- og Bikarkeppninni. Auk þess hafa þessi lið verið sterk í úrslitakeppninni og hafa á að skipa sterkustu heimavöllum landsins og tapa ógjarnan þar. Fjárhúsið og Sláturhúsið eru erfiðir múrar að klífa fyrir aðkomumenn og t.a.m. hefur Keflavíkurliðið leikið 36 leiki á heimavelli síðan 7. jan. 2003 og haft betur í öll skipti nema gegn franska stórliðinu Dijon sem um síðustu helgi tapaði úrslitaleiknum í Bikarkeppni Evrópu. En 32 leikir gegn íslenskum liðum án taps á tæpum 15 mánuðum er mikið afrek.

Snæfell hefur enn ekki tapað leik í úrslitakeppninni. Þeir lögðu Hamar 2-0 og síðan Njarðvík 3-0 eftir að hafa snúið tveimur nánast töpuðum leikjum við á ótrúlegan hátt. Þar sýndu þeir mikinn styrk og hafa öðlast sjálfstraust sem er mikilvægt í svona keppni. Þeir vita að leikurinn er ekki tapaður þótt útlitið sé dökkt og slík trú á eigin getu er gott veganesti í erfiða baráttu. Keflavík hefur þurft að hafa meira fyrir því að komast í úrslitin, fyrst 2-1 gegn Tindastóli og svo 3-2 gegn Grindavík. Alls átta leikir og þar af tveir oddaleikir. Klassíska spurningin á þessum tímapunkti er hvort sé betra að fá hvíld til undirbúnings eða koma beint úr hörkurimmu í úrslitin? Þeirri spurningu verður svarað á næstu dögum.

Bárður Eyþórsson hefur náð að búa til sterka liðsheild úr leikmönnum sem koma úr ólíkum áttum. Sem dæmi má nefna að enginn í byrjunarliðinu lék með liðinu í fyrra og því er hér um að ræða “nýtt” lið, ef svo má segja, sem hefur hafið körfuboltann á Hólminum upp á nýjan stall. Frábær árangur hjá þeim og líklega verða þeir að teljast a.m.k. allt eins sigurstranglegir og okkar menn í komandi stríði.

Allir byrjunarliðsmenn Snæfells eru öflugir sóknar- og varnarmenn. Hlynur Bæringsson er hjartað í liðinu og hefur hann leikið gríðarvel, hefur skorað um 15 stig og hirt rúm 18 (!) fráköst í leik að meðaltali í úrslitakeppninni. Dickerson skorar um 20 stig, Whitmore 14 (þó rokkar hann frá 0 og upp í 40, en hefur átt við smávægileg meiðsli að stríða), Dotson 18 (og ver að meðaltali 4 skot í leik) og Sigurður Þorvaldsson 12. Af bekknum koma síðan Hafþór Gunnarsson og Lýður Vignisson, en þeir eru ekki síst prýðilegar 3ja stig skyttur.

Hér má sjá tölur leikmanna Snæfells í úrslitakeppninni.

Hér má sjá tölur leikmanna Keflavíkur í úrslitakeppninni.

Aðall Snæfellsliðsins hefur verið vörnin og verður að viðurkennast að hún er svakalega öflug. Þeir eiga það til að slökkva í andstæðingum með grimmri vörn sem byrjar á þann veg að þeir eru afar fljótir til baka úr sókninni. Það mun reyna verulega á þann varnarhraða gegn okkar mönnum þar sem Keflavík er jú þekkt fyrir hraðan sóknarleik.

Mörg skemmtileg einvígi milli manna eru í vændum í þessari viðureign, t.d:

  • Hlynur - Fannar: Tveir af bestu miðherjum landsins kljást undir körfunum, báðir annálaðir baráttuhundar sem ekkert gefa eftir, öflugir í vörn og sókn
  • Dickerson - Arnar Freyr: Báðir snöggir, Dickerson meiri skorari og hangir meira á boltanum, en Arnar Freyr hugrakkur, eldfljótur og betri sendingamaður
  • Dotson - Derrick: Dotson meiri háloftafugl og skotblokkari, en Derrick öflugari skorari, mun betri skytta, verður sérlega fróðlegt að sjá Dotson reyna að stöðva Derrick
  • Whitmore - Nick Bradford: Báðir frábærir varnarmenn sem geta bombað þristum og drævað upp að körfunni, Nick þó líklega fjölhæfari lekmaður og meiri leiðtogi
  • Sigurður - Magnús / Gunnar: Sigurður hefur hæðina, en Maggi og Gunni eru betri skyttur og
  • Hafþór og Lýður - Jonni og Sverrir: Hafþór og Lýður eru skyttur, en Jonni og Sverrir ekki síst gríðarlegir varnarjaxlar

Erfitt er að meta hvort byrjunarliðið er sterkara, en Falur og Guðjón geta þó tvímælalaust leitað til fleiri leikmanna en Bárður. Hvort það skiptir máli í fyrsta leik, skal látið ósagt, en allar líkur eru þó á því að það fari að hafa áhrif þegar á seríuna líður, líkt og sást gegn Grindavík.

Í hönd fer æsispennandi tími sem við Keflvíkingar þekkjum vel. Við erum handhafar Íslandsbikarsins og ljóst er að leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn munu gera allt til að halda þeim stóra í Keflavík. Snæfellingar hafa ekki áður leikið til úrslita en þeir hafa mikinn stuðning heima fyrir og ætla sér örugglega að ljúka þessari leiktíð með því að hampa bikarnum góða. Keflavík leikur nú í 11 skiptið til úrslita frá árinu 1989 og hefur unnið útslitahrinuna alls 6 sinnum á síðustu 14 árum. Nú er bara að sjá hvort titill númer sjö komi heim á næstu dögum!

Leikirnir verða sem hér segir:

  • Fim.  1.apr.2004 Stykkishólmur   19.15 Snæfell - Keflavík
  • Lau.  3.apr.2004 Keflavík        17.00 Keflavík - Snæfell
  • Mán.  5.apr.2004 Stykkishólmur   19.15 Snæfell - Keflavík
  • Lau. 10.apr.2004 Keflavík        16.00 Keflavík - Snæfell
  • Mið. 14.apr.2004 Stykkishólmur   19.15 Snæfell - Keflavík

Fyrirhugað er að vera með sætaferðir á Hólminn í þriðja leik, næst komandi mánudag, og í fimmta leik, ef til hans kemur, miðvikud. 14. apríl.

Eins og fyrr mun hraðinn vinna með okkar mönnum, það verður erfitt að skora í hægum leik gegn firnasterkri vörn Snæfellinga, en með góðum hraða og grimmum varnarleik eiga möguleikar okkar að vera góðir í ár. Góða skemmtun og

ÁFRAM KEFLAVÍK!!!