Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2004

Baráttan um Ísland heldur áfram - hver nær forystunni í þriðja leik?

Mikið fjör var í tveimur fyrstu leikjum einvígisins milli Snæfells og Keflavíkur. Segja má að heimavellirnir hafi haldið. Í Fjárhúsinu var spilaður rólegur bolti með löngum sóknum og grimmum vörnum og þar hafði Snæfell betur. Í Sláturhúsinu var hraðinn keyrður upp, sóknirnar stuttar og pressuvörnum beitt og þá hafði Keflavík betur. Baráttan alls ráðandi í báðum leikjum hingað til og töluverð harka í gangi. Dómarar eru í erfiðum hlutverkum því afar mikil átök eru undir körfum báðu megin.

Eins og frá hefur verið greint verða liðin óbreytt í þriðja leik þar sem aganefnd ætlar ekki að funda fyrr en á þriðjudag vegna kærumála úr síðasta leik, en þar var Dickerson vikið af velli. Undarleg vinnubrögð þar á bænum.

Snæfellingar sýndu á sér nýja hlið í síðasta leik þegar þeir röðuðu niður þristum í gríð og erg, settu alls 13 úr 25 tilraunum sem er afar gott. Þeir réðu hins vegar ekki vel við hraðann og pressuna í heilan leik. Sérstaklega virðist mikilvægt að trufla Dickerson því án hans er sóknin afar stirð. Þeir eru þó fjölhæfir sóknarmenn, t.d. Hlynur og Whitmore, sem bæði geta skotið að utan og farið inn í teig. Þeir berjast vel allan tímann og gefa ekki þumlung eftir.

Okkar menn verða að halda áfram að bæta sinn leik sem var ansi köflóttur síðast. Ennþá vantar meira frá 3ja stiga skyttunum, þó Maggi hafi vissulega sett nokkrar afar mikilvægar í síðasta leik. Aðeins 8 þristar í tveimur leikjum er afar lítið hjá Keflavíkuliði sem skoraði t.d. um 10 slíkar að meðaltali í leik gegn Grindavík. Þar að auki þurfum við að halda Dickerson við efnið líkt og Sverrir gerði í síðasta leik. Áfram verður liðið að leita inn í teiginn því þar ráða menn ekkert við Derrick, auk þess sem Fannar og Jonni geta skorað meira, ekki síst með stuttum stökkskotum.

Mikið mun reyna á Sverri og Arnar við að halda uppi góðum hraða og góðum ryþma í sóknarleiknum sem og góðri pressu á Dickerson. Annars munum við eflaust sjá blöndu af svæði og maður-á-mann vörnum og ýmis konar pressuvörn. Snæfellingar leika góða og stífa vörn og gegn henni má eflaust fara meira á bak við vörnina. Snæfell eru fjljótir í vörn, en þeir hafa ekki reynt önnur afbrigði en maður-á-mann sem byrjar aftarlega fyrir utan Dickerson sem á það til að setja pressu á boltann frá miðju vallar.

Stemmingin magnast og mikið fjör framundan. Það lið sem sigrar í þriðja leiknum getur orðið Íslandsmeistari á laugardaginn, svo einfalt er það!

ÁFRAM KEFLAVÍK!!