Besti leikmaður úrslitakeppninnar skrifar undir
Gunnar Einarsson skrifaði á dögunum undir nýjan samning við Keflavík. Gunnar hefur alla sinn feril spilað fyrir Íslandsmeistara Keflavíkur og er næst leikjahæsti leikmaður liðsins með tæplega 700. leiki. Gunnar er í sínu besta formi þessa daganna og átti frábæra úrslitakeppni. Þar sannaði hann ekki aðeins að hann er sennilega besti varnarmaður deildarinnar heldur einnig öflugur sóknarmaður. Það eina sem getur komið í veg fyrir að Gunni spili með Keflavík áfram er að hann hætti að spila körfubolta sem verður að teljast ólíklegt eftir síðasta tímbil.
Gunnar byrjaði að leika með mfl. Keflavíkur árið 1993 og hafði fyrir síðasta tímabil leikið 662 leiki og skorað 5794 stig. Hann er með um 70 % vitanýtingu og hefur orðið 7. sinnum Íslandsmeistari. Hann getur á næsta tímabili orðið leikjahæsti leikmaður liðsins en aðeins Guðjón Skúlasson hefur leikið fleirri leiki en Gunnar.
Ekki er ljóst með Arnar Freyr Jónsson en hann hefur hug að skella sér í nám til Danmerkur. Ef að því verður ekki er vonandi að hann leika áfram með Keflavík enda einn besti leikstjórnandi landsins.
Besti leikmaður úrslitakeppninnar 2008. ( mynf vf.is )