Bestu félagslið Norðulanda mætast á sunnudaginn í keppni um titilinn Meistari meistaranna !
Það verður mikið fjör á sunnudaginn í Sláturhúsinu í Keflavík. Fyrstu stórleikir vetrarins og það eru sko sannkallaðir stórleikir. Reyndar er keppnin um titilinn Meistari meistaranna ekki alveg viðeigandi þetta árið þar sem Keflavík er tvöfaldur meistari bæði hjá körlum og konum. En reglurnar kveða svo um að í slíku tilfelli, þá fari Meistarinn í leikinn sem Íslandsmeistari og sem Bikarmeistari komi liðið sem lék til úrslita í Bikarnum. Og það voru jú KR í kvenna og Njarðvík í karla.
Kvennaleikurinn verður eflaust fjörugur eins og alltaf milli þessarra tveggja stórvelda í íslenskum kvennabolta. Bæði lið með útlendinga í sínum liðum, en þar fyrir utan með svolítið breytt lið frá því í fyrra. KR hefur misst Hildi Sig, en Gréta þjálfari hefur hafði leik að nýju, auk þess sem eitthvað hefur heyrst um Hönnu Kjartansdóttur. Sami Kaninn, Katie Wolfe, mætir til leiks að nýju.
Keflavíkurliðið hefur fengið nýjan Kana sem heitir Reshea og er hún býsna spræk. Annars er liðið nánast óbreytt, nema hvað Erlurnar tvær fóru til Grindavíkur. Í þeirra stað koma til leiks yngri stúlkurnar, ekki síst María Ben og Bryndís, og munu þær leika stærra hlutverk. Að sjálfsögðu eru reynsluboltarnir Anna María, Birna, Marín og Co til staðar sem og þær Rannveig og Svava.
Hjá körlunum verður svaka-svaka leikur, þegar tvö bestu lið Norðurlanda, Keflavík og Njarðvík mætast í slag um fyrsta opinbera KKÍ-titil vetrarins. Bæði lið nýkominn úr fræknum ferðum til útlanda, Njarðvík vann dönsku meistarana Bakken Bears í úrslitum og Keflavík gekk frá finnsku meisturunum Kouvot í úrslitaleik Norðurlandamótsins. Óskum við grönnum okkar að sjálfsögðu til hamingju með frábæran árangur í Árósum.
Bæði lið eru með nýja, öfluga Kana, landsliðsmenn í fantaformi og fullt af öðrum sprækum leikmönnum. Þegar við bætist hefðin og rígurinn góði, þá er ljóst að hér er verið að tala um alvöru leik! Meira um það síðar . . . .