Betri heimasíða
Við hjá heimsíðu Keflavíkur erum alltaf að reyna bæta okkur og nú eru komnir inn nýjir liðir á síðuna. Fyrst ber að nefna lið fyrir neðan mfl karla og kvenna sem heitir leikir. Þar er hægt að sjá leikjaplan meistarflokka og svo úrslit í þeim sem búnir eru. Þar er líka hægt að smella á hvern leik sem búinn er og þá er hægt að sjá tölfræði úr honum. Æfingatafla allra flokka Keflavíkur er líka komin á síðuna. Svo er alltaf hægt að senda okkur póst og ef það er eitthvað sem þið viljið bæta við eða breyta.