Jæja, allir eru svekktir eftir lokasekúndur leiksins. Upp úr sauð þegar brotið var á Derrick í skoti, en ekkert dæmt um leið og leikurinn rann út. Samt var villan greinileg. Meira að segja viðurkenndi eftirlitsdómarinn að brotið hefði verið á Derrick, að sögn Birgis fararstjóra. Keflvíkingar voru að vonum afar ósáttir og mótmæltu kröftuglega, en það þýðir víst ekki að deila við dómarann. Nú bíðum við eftir úrslitum frá Ovarense, því ef þeir vinna þá lendum við í öðru sæti og byrjum 8 liða úrslitin á heimavelli gegn Vichy, en ef Toulon vinnur, þá leikum við gegn Dijon (sem er mun sterkara lið) og hefjum leik á útivelli. Nú höldum við með Ovarense okkar portúgölsku vinum :)