"Big Chris" var of stór fyrir Keflavík sem tapaði fyrsta leiknum í Europe Cup gegn Bakken Bears, 80-81
Hann var einfaldlega of stór í kvöld, Daninn Chris Christoffersson, sem er 2,18m á hæð. Hann gerði það að verkum að okkar menn gátu ekki eða þorðu ekki að sækja inn í teiginn í sóknarleiknum. Og þegar hægðist á leiknum og Danirnir náðu að stilla upp sinni vörn varð sókn okkar manna marklaus. Það kostaði sigurinn í kvöld. 10 stiga forskot eftir þrjá leikhluta, 70-60, hvarf hægt og hljótt um leið og hægðist á leiknum. Það skorti hraða og áræðni, enda leikmenn orðnir þreyttir, og í lokin gekk einnig óheppnin í lið með okkar mönnum.
Þrívegis á stuttum tíma voru okkar menn næstum búnir að ná boltanum í stöðunni 80-79, en einhvern veginn datt boltinn ekki okkar meginn. Umdeildur dómur gerði einnig að verkum að Danirnir fengu boltann aftur þrátt fyrir að 24 sek klukkan væri liðinn án þess að Keflavík hefði náð valdi á boltanum. Sá dómur var á afar gráu svæði þar sem Maggi hafði fangað knöttinn með báðum höndum í örskamma stund þegar hann var við það að detta út af vellinum. Dómararnir mátu aðstæður þannig að Maggi hefði haft vald á knettinum, en Keflvíkingar voru ósammála. Hvað um það, svo fór sem fór.
(Því má við bæta að undirritaður sá þetta atvik í sjónvarpinu rétt í þessu og það er alveg ótrúlegt hvernig menn komust að þeirri niðurstöðu að Keflavík hafi haft vald á knettinum, því Magnús greip hann á leiðinni útaf vellinum og var að reyna að bjarga honum, en hafði engan veginn náð valdi á honum.)
Danirnir fengu iþví nnkast þegar 12 sekúndur voru eftir og þeir stigi undir. Kaninn þeirra, Schiffner, fiskaði villu á Gunna Einars og setti niður bæði vítin þegar fjórar sekúndur voru eftir. Sá tími dugði aðeins fyrir övæntingarfulla skottilraun frá besta manni Keflavíkur, Gunna Einars, en skotið geigaði og fyrsta tapið í Evrópukeppninni leit dagsins ljós.
Leikmenn og stuðningsmenn Keflavíkur voru gríðarlega svekktir eftir leikinn sem þrátt fyrir allt, var stórskemmtilegur, líkt og allir leikirnir í þessari keppni. Danska liðið lék vel og með Christofferson sem kjölfestuna í sókn og vörn voru Danirnir erfiðir við að eiga. Boltinn gekk vel milli manna hjá þeim og auk Kanans var Jensen (nr. 7) góð skytta sem setti 20 stig, flest úr langskotum.
Annars var gangur leiksins okkur í hag mest allan tímann. Gunnar Einarsson hélt áfram í Euro-forminu sínu. Hann var frábær, sérstaklega í fyrri hálfleik, skoraði alls 25 stig og setti niður sex þrista í leiknum. Gunnar hefur þegar stimplað sig inn sem alvöru player á Evrópu maælivkarða. Sverrir var frábær í vörninni og Nick í fínu formi. Maggi var flottur sem leikstjórnandi, hélt uppi hraðanum þrátt fyrir að hittnin hafi oft verið betri. Í seinni hálfleik náði hann tveimur þristum af 8 eða 9 metra færi (3ja stiga línan er í 6,25m fjarlægð). Jonni átti frábærar keyrslur inn að körfunni og virtist ávallt geta farið fram hjá sínum manni, en eins og stundum, fannst manni að hann hefði getað gert mun meira af því, hann er nefnilega illstöðvanlegur þegar hann leggur af stað. Glover átti hins vegar ekki sinn besta dag, hann hræddist Danann stóra og skaut mikið að utan, án þess að hitta, í stað þess að fara nær körfunni og láta "Big Chris" hafa fyrir því að spila vörn. Reyndar er Chris afar erfiður við að eiga, sér í lagi þegar hægist á leiknum. En það var kannski okkar banabiti í leiknum, að missa hraðann úr leiknum, því ásamt hraðanum hvarf áræðnin og við urðum staðir í sókninni.
Danska liðið er gott, líkt og Madeira og Reims, og nú verðum við að sækja a.m.k. einn útisigur í þeim þremur leikjum sem framundan eru. Næsta þriðjudag leikur liðið gegn Reims í Frakklandi og þá gefst fyrsta færið.
Þrátt fyrir tapið þökkum við strákunum fyrir frábæra skemmtun og góðan leik. Það verður að segjast eins og er að þetta eru einfaldlega langskemmtilegustu leikirnir, jafnvel þótt við verðum að sætta okkur við tap öðru hvoru.