Bikardagur á morgun, laugardag - von er á hörkuleik hjá stelpunum gegn ÍS
Það eru topplið 1. deildar kvenna, Keflavík og ÍS, sem mætast í undanúrslitum Hópbílabikarsins kl. 14 á morgun, laugardag. Sigurvegararnir úr þeirri viðureign munu mæta KR eða Grindavík í úrslitaleiknum, en hann verður haldinn laugardaginn 20. des. kl. 14 í Smáranum.
ÍS vann Keflavík í fyrstu umferð Íslandsmótsins með 81 stigi gegn 75 í Keflavík en Keflavík hafði unnið með 10 stigum í Meistarakeppni KKÍ fyrr í haust. ÍS-stúlkur hafa á góðu liði að skipa með þær Öldu Leif, Hafdísi, Lovísu, Svandísi og Stellu í aðalhlutverkum, en í síðasta leik hitti einmitt Stella úr 5 þriggja skotum.
Keflavíkurstúlkur eru ekki síður vel skipaðar og hafa öllu meiri breidd í liði sínu. Hjörtur þjálfari leggur mikið upp úr hröðum leik, þó stundum virðist manni að leikmönnum sé róterað full hratt inná í leikjum, en þá er ákveðin hætta á að þeir komist ekki í takt við leikinn. En þegar keyrslan er í gangi er Keflavík miklu betra lið en ÍS og mun á góðum degi getað sigrað ÍS nokkuð auðveldlega. En stundum er Íþróttafélag Stúdenta okkur erfitt ekki síst ef leikurinn verður hægur. Á morgun þarf Keflavíkurhraðlestin að ganga á fullum dampi og þá er sénsinn allur okkar meginn.
Strákarnir eiga öllu auðveldara verkefni að leysa í 32ja liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar. Þeir sækja Björn (bróðir Einars) Einarsson og hans Þróttara heim í Vogana. Sá leikur verður vart meira en létt æfing, aðalatriðið að engin meiðist.
B-lið Keflavíkur tekur síðan á móti HK að loknum kvennaleiknum. Bæði liðin eru í 2. deild. HK er efst í sínum riðli, en Keflavík B neðst í sínum. Því verður HK að teljast sigurstranglegra í þessum hágæða og magnaða körfuboltaleik.