Bikarhelgin framundan - Öll kvennalið Keflavíkur í úrslitum
Um helgina verður stór helgi í körfunni þegar bikarúrslit yngri flokka fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði í umsjón Hauka. Öll kvennalið Keflvíkinga eru komin í úrslit sem er frábær árángur. Ekkert drengjalið náði að prjóna sig alla leið í úrslit að þessu sinni, en keppt er í 9. flokki og upp í unglingaflokk.
Umgjörð leikja verður glæsileg líkt og tíðkast á þessum helgum og m.a. verða allir leikirnir í beinni útsendingu á netinu. Dagskrá helgarinnar og frekari umfjöllun má sjá hér.