Fréttir

Körfubolti | 10. febrúar 2003

BIKARINN 2003 - Karlarnir unnu öruggan sigur gegn Snæfelli, 96-71

Eftir vonbrigðin úr kvennaleiknum myndaðist smá stress hjá áhorfendum fyrir karlaleikinn. Gæti þetta gerst aftur?


Leikurinn byrjaði með látum og mikið fjör var á vellinum. Liðin voru nokkuð jöfn framan af og síðast í stöðunni 19-19. En þá fór getumunurinn að koma í ljós. Maggi Gunnars og Damon smelltu niður þremur þristum á stuttum tíma og Ed tróð “viðstöðulaust” eftir góða sendingu frá Damon. Í hálfleik var munurinn orðinn 13 stig, 46-33, og fátt benti til annars en Keflavíkursigurs, þótt reynslan úr kvennaleiknum minnti menn á að fagna ekki of snemma.

En strax í upphafi seinni hálfleiks stakk Keflavíkurhraðlestin Snæfellinganna af og munurinn fór á tímabili yfir 30 stig. Hólmararnir áttu ekkert svar og virtust innst inni ekki hafa haft trú á því að þeir gætu unnið. Enda er breidd liðsins ekki mikil og tilfinnanlega vantar skyttur, undir körfunum eru þeir sterkir með Clifton Bush og Hlyn Bæringsson í aðalhlutverki, en það er ekki nóg til að verða Bikarmeistari.

Keflavíkurliðið setti met þar sem það lagði fimm úrvalsdeildarlið á leið sinni að Bikartitlinum. Fyrst Skallagrím, síðan Hauka, svo Njarðvík, þá ÍR og loks Snæfell í úrslitum. Ekki er því hægt að segja annað en að liðið sé vel að titlinum komið.

Damon var öflugur og sömuleiðis Ed, þeir áttu teiginn með aðstoð Jonna og stjórnuðu í raun leiknum. Bakverðir okkar voru vel með á nótunum, ekki síst Maggi Gunn, Gunni Einars og Sverrir Þór. Eins áttu Gunnar Stefánss og Davíð Jóns fínar innkomur. Guðjón og Falur voru rólegir, en skiluðu sínu, þótt Guðjón hafi yfirleitt verið hittnari í Laugardalsdhöllinni.

Sigurður þjálfari varð í annað sinn Bikarmeistari sem þjálfari karlaliðsins og jafnaði þar með afrek Jóns Kr., en aðeins þessir tveir þjálfarar hafa orðið Bikarmeistarar karla með Keflavík. Sigurður átti frekar náðugan dag í Höllinni, þar sem allt gekk upp hjá okkar mönnum. Leikurinn varð í raun aldrei spennandi, til þess var getumunurinn of mikill.

Þjálfarinn leggur línurnar

Heimasíðan óskar þjálfara, leikmönnum og öllum Keflvíkingum til hamingju með titilinn! Liðið er á góðu skriði um þessar mundir og hefur unnið alla sjö leiki sína frá því að Ed gekk til liðsins, fjóra í deild og þrjá í Bikar.

En það er skammt stórra högga á milli. Á föstudaginn fara Keflavíkurkarlar suður til Grindavíkur í heimsókn til toppliðs Intersport-deildarinnar. Grindavík hefur verið okkar erfiðasti andstæðingur í vetur og væntanlega er háspennuleikur framundan.