Bikarkeppni Evrópu
Nú þegar Bikarkeppni Evrópu er á næsta leyti er margt sem þarf að hugsa um. Keflavík tekur sem kunnugt er þátt í henni og okkar menn eru á fullu að undirbúa sig. Þetta á bæði við um leikmenn, stjórnarmenn og starfsmenn. Eitt af því sem verið er að vinna í er hugbúnaður sem notaður er á leikjum til að skrá tölfræði.
Þetta kerfi er orðin krafa frá Fiba að nota. Kerfið virkar þannig að notuð er tölva til að skrá allt sem gerist í leiknum og færa beint inn á fibaeurope.com. Sem sagt þegar leikur er í gangi er allt fært beint inn á fiba síðuna og þannig hægt að fylgjast með öllu sem gerist. Þetta á við allar upplýsingar sem skráðar eru td. stigaskor, villur, stoðsendingar, stolnir boltar og fl. Allar upplýsingar eiga svo að vera klárar fyrir leik og líka fréttir af liðunum á vefsíðunni.
Það hefur nokkuð borið á því að upplýsingar eru stundum ekki alveg réttar. Okkar menn voru sendir á námskeið til að læra á þetta kerfi og líka til að bera saman bækur sínar hvernig á að skrá leiki þannig að allir skrái leiki á sama máta. Á námskeiðinu kom fram að nokkrir hlutir í skráningu leikja eru mismunandi á milli liða. Í heimaleikjum liðs frá Ítalíu var meðaltal stoðsendinga 6,2 og hjá okkur í sömu keppni 48,3.
Notkun á þessum hugbúnaði á að tryggja réttari upplýsingar frá leikjum og samræmi á milli liða. Hugbúnaðinn fá þau lið til afnota sem taka þátt i Evrópukeppni. Þau hafa einnig leyfi til að nota það í öllum leikjum sem þau spila. Þetta ætlar Keflavík að nota sér og er ætluninn að setja kerfið í notkun á næstu vikum. Fyrsti leikur okkar í Bikarkeppni Evrópu er svo 3. nóv. þegar við spilum við Reims Champagne frá Frakklandi.
.