Bikarkeppni Evrópu: allt jafnt í B-riðli Vesturdeildar
Toulon vann okkur og Ovarense lagði Madeira með 5 stigum á heimavelli, 82-77. Það var Spánverjinn Joffre Lleal (númer 9) sem reddaði Ovarense, en þeir voru undir nokkrum mínútum fyrir leikslok. Þá tók hann til sinna ráða og raðaði niður körfunum, setti alls 25 í leiknum (11 gegn Kef.). Vinur okkar Michael "jaki" Wilson skoraði aðeins 9 stig en tók niður 10 fráköst.
Eftir tvær umferðir er þá staðan sú að öll félögin hafa unnið einn leik og tapað einum. Allir fjórir leikirnir hafa unnist á heimavelli. Madeira er eina liðið sem hefur jákvæðan stigamismun, því þeir unnu með 19 stigum en töpuðu aðeins með 5 stigum. Öll hin 3 liðin töpuðu með meiri mun en þau unnu. Heimavöllurinn virðist skipta verulegu máli og alveg ljóst að við verðum að reyna að verja heimavöllinn okkar með kjafti og klóm.
Í A-riðlinum er sama staðan uppi á teningnum, öll fjögur liðin hafa unnið einn leik og tapað einum. Einnig hafa þar allir leikir unnist á heimavelli.
Næsti heimaleikur er miðvikudaginn 26. nóv. gegn Madeira.
Hér má sjá allt um Vesturdeildina.