Fréttir

Körfubolti | 3. desember 2003

Bikarkeppni Evrópu: Jason Rowe með stórleik þegar Toulon lagði Madeira í kvöld, 73-60

Í kvöld tók Hyeres Toulon Var á móti Club Amigos frá Madeira í B-riðlinum í Vesturdeildinni í Bikarkeppni Evrópu. Af tölum má ætla að leikurinn hafi ekki verið sérlega góður, því stigaskorið var mjög lágt. Í hálfleik leiddu gestirnir frá Madeira, 28-33. En í seinni hálfleik tók bakvörðurinn snaggaralegi Jason Rowe öll völd á vellinum og kom sínum mönnum í gírinn. Við upphaf fjórða leikhluta var staðan, 53-45 og lokastaðan var 73-60 fyrir Toulon. Líklegast hefur leikurinn verið hægur, því skorið var lágt, sérstaklega í fyrri háfleik, og ekki var mikið af brotum (alls 36) og töpuðum boltum (alls 32), a.m.k. ekki miðað við það sem við þekkjum :)

Jason Rowe átti glæsilegan leik, skoraði 26 stig (nýtti 11 af 16 skotum) og gaf 12 stoðsendingar. Auk hans hefur hinn Kaninn, Floyd Miller, átt góðan leik með 20 stig og frábæra nýtingu (9 af 11). Hjá Madeira voru trukkarnir tveir öflugastir, Nate Johnston gerði 20 stig og hirti 10 fráköst, en nýting hans var afleit (5 af 17 í 2ja og 1 af 6 í 3ja). Ken Leeks gerði síðan 14 stig og tók 12 fráköst, en var einnig með slaka nýtingu (alls 6 oní af 17 skotum). Skyttan Gimenez (nr. 8) gerði líka 14 stig. Þess má geta að skorarnir sterku, Chema Marcos og Pedro Nuno, eru enn meiddir og léku ekki með Madeira í kvöld.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

 Með sigri þessum skaust Toulon upp í efsta sæti riðilsins, því einhverra hluta vegna gefur FIBA eitt stig fyrir tap (?), auk þess sem tvö stig fást fyrir sigur. Því hafa Frakkarnir nú 6 stig að loknum 4 leikjum (2 sigrar og 2 töp), en Keflavík og Ovarense hafa 5 stig að loknum 3 leikjum (2 sigrar og 1 tap). Madeira rekur lestina, einnig með 5 stig, en eftir 4 leiki (1 sigur og 3 töp).