Bikarkeppnin KKÍ og Dorítos, 8 liða úrslit: Keflavík mætir Njarðvík! og B-lið Keflavíkurkvenna mætir annað hvort A-liði Keflavíkur eða Njarðvík
Það var eins og sumir hefðu fundið þetta á sér. Aðeins tvö "stórveldi" voru eftir í pottinum, tvö af sigursælustu félögum síðustu ára, og Reyknesbæingar hefðu allra helst viljað sjá þessi tvö félög, Keflavík og Njarðvík, etja kappi í sjálfum úrslitaleiknum.
En þau drógust saman svo nú verður í mesta lagi eitt lið úr bænum í úrslitum. Þessi leikur verður all svakalegur, ekki síst fyrir þær sakir að Keflavík á nú möguleika á að tjalda nýjum Kana og orðrómur er á kreiki um að Njarðvík geti gert slíkt hið sama. Hvort eitthvað gerist í þessum málum skal ósagt látið, allir bíða spenntir . . .
Ekki spillir fyrir fjörinu að þremur dögum fyrir bikarleikinn sem verður haldinn föstudaginn 10. jan. munu félögin mætast í fyrsta leik Intersportdeildarinnar á nýju ári, væntanlega þriðjudaginn 7. jan. Greinilegt að árið mun byrja með flugeldasýningu!
Ekki þurfa kvennaliðin að fara í löng ferðalög í 8 liða úrslitunum. B lið stúlknanna sem lagði Heklu á dögunum mætir sigurvegaranum úr nágrannaslagi Keflavíkur og Njarðvíkur á nýju ári. Þrátt fyrir mikla leikgleði má telja sigurlíkur B liðsins frekar litlar í þeirri viðureign . . .