Bikarleikir í Keflavík á Sunnudag
Nú þegar við erum komnir áfram í Bikarkeppni Evrópu er komið að Íslensku Bikarkeppninni. Á sunnudaginn mætum við Haukum í 16 liða úrslitum Bikarkepnni kki og Lýsingar. Leikurinn er á okkar heimavelli kl 19.15. Nú er það okkar stuðningsmanna að sýna stuðning í verki og mæta á leikinn og hvetja strákana áfram. Enda eigum við bikar að verja erum núverandi bikarmeistarar. Í síðustu umferð slógum við Snæfell út með góðum sigri 102-86, þar sem Magnús Gunnarsson fór á kostum og setti niður 27 stig. Antony Glover átti líka góðan leik skoraði 24 sem og allt liðið sem lék þennan leik skínandi vel.
Haukar hafa gert breytingum á liði sínu, fengið inn nýjan kana að nafni Damon Flint sem spilaði með háskólaliðinu Cincinnati. Damon er bakvörður og skoraði 17 stig í sínum fyrsta leik í deildinni á móti Skallagrím.
Bikarleikir eru alltaf skemmtilegir leikir og öðruvísi stemming í þeim, enda þarf að vinna leikinn til að komst í næstu umferð og þangað ætlum við okkur. Við áttu ekki góðan leik á móti Haukum síðast, og voru Haukarnir aldrei langt undan. Strákarnir verða að leggja meira á sig í þessum leik og komast í 8 liða úrslit. Allir á leikinn og áfram Keflavík
Keflavík mætir Keflavík B í bikarleik í kvennaflokki sama dag kl 12.00.

Damon Flint nýji Hauka kaninn.