Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 4. desember 2009

Bikarleikir karla og kvenna á morgun

Það verður nóg að gera fyrir gallharða stuðningsmenn Keflavíkur á morgun, því bæði strákarnir og stelpurnar eiga leik í Subway bikarkeppninni. Stelpurnar eiga leik í Toyota Höllinni klukkan 13:00 og eru það Grindavíkur-stúlkur sem mæta í heimsókn. Keflavíkur-stúlkur eiga harm að hefna frá síðustu viðureign liðanna, en þá fór Grindavík með sigur af hólmi í Röstinni.

Strákarnir eiga leik klukkan 16:00 í Vodafone Höllinni gegn Val.

Allir stuðningsmenn hvattir til að mæta og styðja við bakið á sínu fólki.

Áfram Keflavík!