Fréttir

Körfubolti | 7. janúar 2004

Bikarleikur gegn Haukum - að duga eða drepast!

Þar til úrslitakeppnin hefst eru Bikarleikir (og grannaslagir) oft skemmtilegustu leikirnir sem boðið er upp á í íslenskum körfubolta. Bikarleikir eru nefnilega alltaf úrslitaleikir, sá sem sigrar eygir von um að komast í sjálfan úrslitaleikinn í Höllina en sá sem tapar verður að bíta í það súra epli að "geta einbeitt sér að deildinni" eins og svo skemmtilega er sagt stundum.

Okkar andstæðingar í fjórðungsúrslitum Bikarkeppninar þetta árið eru Haukar úr Hafnarfirði. Haukar hafa átt misgóða leiki í vetur, en hafa vel mannað lið, ekki síst með tilkomu nýja Kanans þeirra, Whitney Robinson, sem leikur, að því að okkur er sagt, sinn fyrsta leik með Haukum gegn okkur í Bikarnum. Whitney þessi er bakvörður og mikil skytta. En burðarás liðsins hefur í vetur verið Mike Manciel sem leikið hefur manna best í Intersport deildinni. Hann er alger burðarás liðsins, skorar 27 stig og hirðir um 15 fráköst að meðaltali. Einnig er hann helsta 3ja stiga skytta liðsins og sá sem stelur flestum boltum. Segja má að hann hafi náð að fylla vel það stóra skarð sem Stevie Johnson skildi eftir sig.

Halldór, Mael, Ingvar og Sævar eru allir ágætar skyttur og sóknarmenn, ser í lagi hefur Sævar vaxið og er hann óumdeildur stoðsendingakóngur liðsins. Þessir strákar skora á milli 6 - 11 stig í leik að meðaltali, Halldór er þeirra stigahæstur.

Pedrag "Kuki" Bojovic er ágætur "stór maður" en leikur þó ekki afgerandi hlutverk í liðinu, skorar 5 stig og tekur um 4 fráköst. Aðrir atkvæðameiri menn eru Kristinn Jónasson með svipaðar tölur, og Þórður Gunnarsson. Ekki má heldur gleyma Njarðvíkingnum Sigurði Einarssyni, en hann á það til að springa út í leikjum og taka góðar skorpur.

Hér má sjá tölfræði Haukaliðsins úr Intersport-deildinni.

Haukar hafa unnið 6 af 12 leikjum í deildinni og töpuðu gegn Keflavík í Keflavík skömmu fyrir jól í afar slökum leik. En það hefur oft verið einkenni á Haukum í viðureignum gegn Keflavík að á heimavelli eru þeir erfiðir andstæðingar sem leika til sigurs en ansi oft er mótspyrnan lítil þegar þeir koma til Keflavíkur.

Þeir eru nokkuð hávaxnir Haukarnir og byggja mikið leik sinn í kringum Sævar og Mike. Þetta getur þó breyst með nýja Kananum, því gera má ráð fyrir að hann ógni verulega að utan. Þetta gæti opnað meira fyrir hinum skyttunum og allir vita hve hættulegir Halldór Kristmanns og Marel geta verið á góðum degi.

Ef tölfræði liðanna úr deildinni er borin saman kemur eftirfarandi í ljós:

  • Keflavík skorar að meðaltali 98 stig en Haukar 81
  • Keflavík hittir úr 37% 3ja stiga en Haukar 32%
  • Keflavík nýtir 77% vítaskota en Haukar 76%
  • Keflavík nýtir 53% 2ja stiga skota en Haukar 47%
  • Keflavík tekur að meðaltali 40 fráköst en Haukar 37
  • Keflavík hefur varið 49 skot en Haukar 14
  • Keflavík fær að meðaltali 23 villur en Haukar 19
  • Í Keflavík eru fjórir leikmenn sem hafa að meðaltali skorað meira en 10 stig (Derrick, Nick, Falur og Gunni E), en tveir hjá Haukum (Manciel og Halldór)

En tölfræðin segir náttúrulega ekki neitt þegar út í leikinn er komið, þá er það baráttan og viljinn sem skiptir sköpum, sérstaklega í úrslitaleikjum eins og þeim sem framundan er. Okkar möguleikar eru ágætir ef menn mæta einbeittir til leiks og leika góða vörn, því hún er algert frumskilyrði til að ná upp hröðum og opnum leik, en eins og menn hafa margoft séð, þá standast okkur fáir snúning ef það gerist. Ef hins vegar vörnin er slök, þá skora andstæðingarnir mikið og komast í vörn á undan okkur, hægja á leiknum og gera okkur erfitt fyrir. Því vonumst við eftir brjálaðri baráttu og miklum sigurvilja á morgun, því í Bikarleikjum er bara einn séns . . . .

Við gerum ráð fyrir því að lið okkar verði fullskipað að Fali undanskildum. Jonni hefur átt í erfiðum sinameiðslum, en vonandi verður hann leikfær. Fannar er ekki löglegur og leikur því ekki með í þessum leik. Bakverðirnir eru sprækir og vonandi verða þeir grimmir í vörninni og beittir í skotunum.

Og svo að síðustu þá má ekki gleyma áhorfendum, en oft hafa Keflvíkingar verið háværir á útileikjum og við vonum að svo verði einnig á morgun. Menn mega hafa í huga að leikurinn hefst kl. 20.30.