Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 21. febrúar 2012

Bikarleikur í kvöld.

Í kvöld kl. 20:00, þriðjudaginn 21. febrúar, leika drengir í 9. flokki leik í fjögurra liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ og fer leikurinn fram hér í Toyotahöllinni. Keppt er við lið Hauka en þessi lið hafa keppt tvo leiki fyrr í vetur og vann Keflavík fyrri leikinn en Haukar þann seinni og verður því væntanlega um spennandi leik að ræða. Í liði Hauka er einn efnilegasti körfuboltadrengur landsins Kári Jónsson sonur Jóns Arnars Ingvarssonar frækins Haukamanns til margra ára og einn af lykilmönnum íslenska körfuknattleikslandsliðsins hér áður fyrr.  Eins og áður segir er leikurinn um sæti í úrslitum bikarkeppninnar sem fara fram um komandi helgi. Grindvíkingar hafa nú þegar tryggt sér farmiða í úrslitin í þessum árgangi.

Hvetjum alla Keflavíkinga til að mæta og styðja drengina í leiknum í kvöld.

Áfram Keflavík !