Bikarmeistarar ÍS voru engin fyrirstaða fyrir Keflavíkurstúlkur á leiðinni í Höllina
Flestir áttu líklega von á frekar jöfnum leik þegar Bikarmeistararnir og topplið deildarinnar, ÍS, mætti Íslandsmeisturum Keflavíkur í undanúrslitum Bikarkeppninnar í kvöld. En þessi leikur varð aldrei jafn, frá fyrstu mínútu var Keflavíkurliðið miklu betra og Stúdínur voru gersamlega kafsigldar. Í byrjun gekk reyndar báðu liðum erfiðlega að skora og eftir fyrsta leikhluta var staðan 13-4. Keflavík skoraði fyrstu 11 stig leiksins og ÍS komst fyrst á blað eftir 8 mínútna leik.
Við upphaf annars leikhluta fór að færast meira fjör í Keflavík en ekkert gekk hjá gestunum. Keflavík herti vörnina og jók hraðan en ÍS komst ekkert áleiðis. Miklu máli skipti að Hjörtur þjálfari lét Keflavík lengst af leika svokallaða "box og 1" vörn sem felst í því að aðalleikmaður liðsins, Alda Leif, er nánast "tekin úr umferð" og svo leika hinar fjórar svæðisvörn, svokallað "box". Rannveig og Bryndís fengu það hlutverk að gæta Öldu á þann veg að þegar hún hafði sent boltann frá sér átti hún ekki að fá hann aftur. Þetta gekk upp og sóknarleikur ÍS var vandræðalegur, þær fundu engin færi. Í hálfleik var staðan orðin 34-12, 22ja stiga munur og leikurinn í öruggum höndum okkar stúlkna.
Allir muna hvernig ÍS vann upp 17 stiga forskot í síðasta úrslitaleik, en nú var ekkert svoleiðis í gangi. Keflavík var einfaldlega miklu betra liðið og þær héldu áfram að auka muninn í seinni hálfleik. Í blálokin náðu Stúdínur aðeins að laga stöðuna, en munurinn í lokin var 38 stig, 76-38. Hreint ótrúlegir yfirburðir.
Allt Keflavíkurliðið lék vel í þessum leik, þótt vissulega megi enn ýmislegt bæta, t.d. var full mikið af öþarflega slökum sendingum. En vörnin var hreint frábær, ÍS-liðið komst ekkert áleiðis og var algerlega slegið út af laginu. Mörg hraðupphlaup gengu upp og síðan gekk boltinn líka ágætlega í sókninni. En það var fyrst og fremst vörnin sem vann þennan leik. María Ben og Erla Þorsteins skoruðu mest, en allar stúlkurnar tóku þátt í leiknum og allar náðu að skora.
Það verða því erkióvinirnir úr kvennaboltanum, KR og Keflavík, sem mætast í Bikarúrslitum 7. feb. næst komandi. Sá dagur verður sannkallaður bikardagur fyrir Keflvíkinga, því að kvennaleiknum mætast aðrir erkióvinir, nefnilega Njarðvík og Keflavík.
Glæsilegur leikur stúlkur - til hamingju!