Fréttir

Körfubolti | 2. desember 2003

Bikarmeistarar Keflavíkur til Þorlákshafnar

Bikarmeistarar Keflavíkur mæta Þór Þorlákshöfn á útivelli í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ & Lýsingar, en bikarmeistarar ÍS í kvennaflokki fá Hamar í heimsókn. Keflavíkurdömur leika í Seljaskóla gegn ÍR en B lið kvenna leikur gegn frísku 2. deildar liði Hauka.

Í kvennaflokki drógust eftirtalin félög saman:

  • ÍS - Hamar
  • Ármann/Þróttur - UMFG
  • KFÍ - UMFN
  • Haukar - Keflavík b
  • ÍR - Keflavík
  • Breiðablik - Þór Ak.
  • KR og Tindastóll sitja hjá.

Í karlaflokki mætast eftirtalin félög:

  • Grundarfjörður/Reynir - Tindastóll
  • Fjölnir - HK
  • Reynir S. - Hamar
  • Þór Þorl. - Keflavík
  • KR b - Snæfell
  • Höttur - UMFN
  • KFÍ - Haukar
  • ÍR - UMFG

Leikdagar eru 14. desember hjá körlunum (sunnud.), en 17. desember (miðvikud.) hjá konunum. Keflavík mætir Þór Þorlákshöfn einni viku fyrr í deildinni, sunnud. 7. des.