Bikarslagur í dag - Timothy Szatko genginn í Grindavík - Hverjir komast í úrslitin?
Leikir Grindavíkur og Keflavíkur hafa verið afar skemmtilegir og spennandi undanfarin ár. Bæði liðin geta "sprungið út" á skömmum tíma í leiknum og skorað grimmt, þannig að leikurinn er ekki unninn þótt annað liðið nái afgerandi forystu í fyrri hálfleik, jafnvel þótt forystan sé 10-20 stig. Margoft hafa leikirnir verið sveiflukenndir og yfirleitt alltaf hraðir. Skemmst er að minnast leik liðanna í deildinni fyrir áramót, en þá sigruðu Grindvíkingar með aðeins 2ja stiga mun, 92-90, eftir að hafa haft 18 stiga forskot í hálfleik, 54-36. Einnig muna allir eftir úrslitahrinu þessara liða á Íslandsmótinu í vor, en þá var Keflavíkurliðið áberandi sterkara en Grindavík og sigraði 3-0 í rimmunni um "þann stóra".
Miklar sviptingar hafa verið innanborðs hjá þessum félögum á undanförnum dögum og vikum. Bæði liðin hafa misst stórskyttu úr liði sínu, Keflvíkingar Fal Harðarson og Grindvíkingar Helga Jónas Guðfinnsson. Falur á við hnémeiðsli að stríða, en er á batavegi eftir speglun í vikunni. Helgi glímir við erfiða sýkingu í kvið sem ekki hefur fengist lækning á eftir því sem okkur skilst. Þó hefur Helgi verið með í "stærri" leikjum vetrarins og engum þyrfti að koma á óvart að sjá Helga í Grindavíkurtreyjunni á morgun. Fannar Ólafsson kom til liðs við Keflavík á dögunum en lenti í því óhappi að fingurbrotna og getur því ekki liðsinnt félögum sínum á morgun, því er ver.
Og svo eru það Kanamál Grindvíkinga. Þeir létu Dan Trammel fara skömmu fyrir jól, þar sem hann þótti ekki nógu öflugur sóknarlega. Hann hafði sína kosti, karlinn, gat frákastað og troðið, en Friðrik Inga fannst hann ekki gera nóg fyrir liðið og kaus því að skipta um mann. En svo kom babb í bátinn, að því að fréttir herma. Sá sem koma átti, Stroud að nafni, kaus að ganga ekki að tilboði Grindvíkinga og fór til Ungverjalands. En þeir deyja ekki ráðalausir, Grindjánar, og leituðu grimmt að nýjum manni, eftir því sem sögusagnir segja. Og þeir virðast hafa fundið leikmann í liðið, því samkvæmt félagaskiptaskrá KKÍ, hefur leikmaður að nafni Timothy Szatko, gengið í raðir UMFG frá og með deginum í gær, 16. jan. 2004. Að því sem við fáum séð hefur kappinn sá tvöfalt ríkisfang, amerískt og pólskt og kemur því væntanlega til landsins sem Bosmann-leikmaður, þótt hann komi frá Bandaríkjunum. Hann er 2,04 m á hæð og 103 kg og leikur því væntanlega í stöðu framherja eða miðherja.
Heimasíðan vill þó lýsa yfir undrun sinni yfir því að leikmenn virðast skjóta upp kollinum svona rétt fyrir leiki án þess að frá því sé greint í fjölmiðlum. Einhvern veginn virðast fjölmiðlar ekki með á nótunum, eða þá að þeir hafa ekki áhuga, eða kannski bara að þeir hafa gefist upp á því að reyna að fylgjast með þessum Kanamálum. Alla vega hlýtur það að teljast undarlegt, að þegar undanúrslitaleikur í Bikarkeppninni er í vændum, þá veit enginn (nema kannski menn í innsta hring) hvernig liðið verður skipað. Svipað var uppi á teningnum í viðureign Keflavíkur og Hauka, en Haukar greindu t.d. ekki frá nýja Kananum á heimsíðunni sinni og maður hafði á tilfinningunni að þeir væru að reyna að "leyna" andstæðinga sína því að liðsstyrkur hefði borist. Ekki hafa Grindvíkingar heldur greint frá sínum málum. En hvað um það, félögin verða að fá að hafa þetta eins og þau vilja, en fjölmiðlar gætu þarna kannski staðið sig betur. T.d. var á dögunum grein í Mogganum um undanúrslitin, en ekkert var gert til að komast að hinu sanna með útlendingamál Grindvíkinga. Jæja, . . .nóg um það . . aðeins meira um leikinn sjálfann!
Darryl Lewis ER Grindvíkurliðið, svo einfalt er það. Vissulega eru fleiri góðir leikmenn innanborðs, t.d. Helgi Jónas (þegar hans nýtur við), Páll Axel og Guðmundur Bragason. En allar sóknir Grindavíkur fara í gegnum Darryl. Hann hefur þær flestar, dripplar mikið og leitast við að komast nálægt körfunni. Hann er afar snjall leikmaður og lipur og virðist komast fram hjá flestum varnarmönnum. Ef vörnin riðlast við að reyna að gæta Darryls opnast oft fyrir Pál Axel sem er hreint frábær skorari, drengurinn sá. Hann virðist stundum geta skorað úr alls kyns færum og ekki síst úr langskotum utan við 3ja stiga línu. Nýji Kaninn er spurningamerki (við vitum ekkert um hann), en reikna má með að þar sé kominn 20 stiga maður sem geri liðið sterkara undir körfunni í sókninni, því þar eru kannski helstu veikleikar Grindavíkur, því þeir reiða sig mikið á gegnumbrot Lewis annars vegar og skot utan af velli hins vegar.
Það er skoðun Heimasíðunnar að Keflavík þurfi að reyna að fremsta megni að þreyta Lewis og varna honum þess að vaða inn í teginn okkar. Vissulega er hann prýðilegur skotmaður líka, en hann skaðar okkur meira með gegnumbrotum, þar sem hann sækir mikið af villum og sóknarfráköstum ef hann kemst að körfunni. Eins er hann afar snjall að skora, þrátt fyrir að vera umkringdur varnarmönnum á alla kanta. Skyttur Grindvíkinga, Páll Axel og Helgi (ef hann keppir) eru það góðar, að ekki má gefa þeim neitt pláss til að athafna sig. Varnarmenn verða að "líma" sig á þá og vera í andlitinu á þeim, um leið og þeir fá boltann. Aðeins þannig er hægt að koma í veg fyrir góð skot. Gaman verður að sjá varnaruppstillingu Keflavíkur, en gera má ráð fyrir að Nick, Jonni eða Sverrir fái að spreyta sig gegn Lewis. Þeir verða að dekka hann allan völlinn, en mega þó ekki koma of nærri honum, því þá er hann farinn fram hjá.
Okkar varnarleikur er misjafn, stundum slakur en stundum aggressívur og góður, sérstaklega þegar stemming myndast og menn verða kappsfullir. Slíkt ætti að vera uppi á borðum á morgun, því tilefnið er ærið. Kannski verður leikin maður á mann vörn, kannski svæði (þar sem menn verða þó að passa skytturnar) og kannski líka pressuvörn allan völlinn. Líklega verður þessu blandað saman eftir því hvernig leikurinn þróast.
Í sókninni verðum við að fara inn í teig og finna Derrick, því heimamenn munu eiga erfitt með að stöðva hann. Það losar líka um aðra, t.d. Jonna, sem má vera duglegur að nýta sér glufurnar. Eins verða bakverðir okkar að halda uppi góðum hraða til að opna leikinn. Þannig skapast færi fyrir skytturnar, en þær eru margar í okkar liði sem geta dottið í stuð. Gunnararnir, Hjörtur og Maggi geta allir dúndrað niður þristum á góðum degi og svo á Nick það til að hitta öðru hverju úr þristum líka. En hans hlutverk er ekki síst að brjótast inn í vörnina og láta leikinn flæða. Því hraðari sem leikurinn er, þeim mun betur leikur Nick og þeim mun fleiri góð skotfæri fáum við.
Það er allt mögulegt í þessum leik og allt getur gerst. Keflvíkingar verða að mæta með rétt hugarfar í vörnina, það er líklegast aðalatriðið. Ef það gerist munu færin koma og skotin detta. Hraðinn vinnur með okkur, því breiddin er góð. En nú hefur nóg verið sagt . . . . það eru leikmennirnir á vellinum sem munu útkljá málin sín á milli, en áhorfendur geta líka stutt dyggilega við bakið á þeim, og það skiptir verulegu máli. Vonandi láta Keflvíkingar ekki vont veður aftra sér frá því að skjótast til Grindavíkur, enda er um sannkallaðan stórleik að ræða, því sigurvegarinn kemst í Höllina í sjálfan Bikarúrslitaleikinn.
Það gerist ekki betra !
Já og svo megum við til með að óska nágrönnum okkar úr Grindavík til hamingju með að eiga Idol-stjörnu ársins - til hamingju með það Kalli sailor!