Fréttir

Bikarslagur í TM-Höllinni í kvöld
Körfubolti | 2. desember 2013

Bikarslagur í TM-Höllinni í kvöld

Það verður sannkallaður stórleikur í Poweradebikarnum í kvöld þegar Keflavík tekur á móti Grindavík í TM-Höllinni kl. 19.15. Um er að ræða síðasta leikinn í 16-liða úrslitum. Búast má við hörku leik en bæði lið hafa byrjað vel í deildinni og sitja þar í 2. og 3. sæti. 

Fólk er hvatt til að mæta á leikinn en fyrir leik verða grillaðir hamborgarar svo enginn verði svangur meðan á leik stendur.