Fréttir

Körfubolti | 6. febrúar 2003

BIKARÚRSLIT KVENNA: Anna María þjálfari fjallar um leikinn

Jæja þá er loksins að koma að því sem við höfum beðið eftir í allan vetur, BIKARÚRSLITIN á laugardaginn. Við settum okkur markmið í haust að vinna alla titla sem í boði eru og það er einn kominn í höfn og vonandi tekst okkur að landa öðrum á laugardaginn, við erum allavega tilbúnar í slaginn, allar þokkalega heilar engin alvarleg meiðsli í gangi. 

Við fórum erfiða leið í úrslitin að þessu sinni byrjuðum á útileik við Njarðvík, "útileik" við Keflavík b og svo útileik við UMFG þannig að við ætlum okkur sigur. Mótherjar okkar að þessu sinni er lið ÍS sem eru verðugir andstæðingar þó við séum efstar og þær neðstar hjálpar það okkur ekkert á laugardaginn.

Þær hafa verið að styrkjast eftir áramótin eftir að Alda Leif og Overstreet hófu að spila með þeim og við þurfum að hafa góðar gætur á þeim tveimur sem bera leik þeirra uppi en annars er þeirra helsti styrkur skotin fyrir utan það þurfum við að stoppa.

Við leggjum mikla áherslu á að spila góðan varnarleik á laugardaginn það hefur verið okkar helsti styrkur í vetur og vonandi gengur það eftir. Undirbúningur fyrir þennan bikarúrslitaleik er eins og fyrir alla aðra bikarúrslitaleiki við förum á æfingu í höllina á morgun (föstudag) og svo verður........................... sama og síðast og þar áður og þar áður eins langt aftur og ég man.......

Ég hef fulla trú á að við komum með bikarinn heim en það gerist ekki að sjálfu sér það kostar mikla baráttu hjá leikmönnum og ekki síst stuðningsmönnum sem vonandi fjölmenna á leikinn við þurfum virkilega á stuðningi að halda.

Sjáumst á laugardaginn

ÁFRAM KEFLAVÍK !!!!!!!!!

Anna María, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur