Bílvíkurmótið hefst á mánudag
Á mánudag hefst Bílvíkurmótið en í mótinu leika fjögur lið, heimamenn í Njarðvík, Keflavík, Grindavík og Fjölnir.
Breyting hefur verið gerð á upphaflegu dagskrá mótsins, og hún felur í sér að leikirnir svissast á þriðjudag, þe UMFN og Keflavík hefja leik 18:30 og Fjölnir og Grindavík mætast á eftir eða kl 20:30.
Heimasíðan hvetur stuðningsmenn til að kíkja á strákana í þessu sumarmóti en leikirnir fara allir fram í Njarðvík.
Mánudagur 18. júlí:
18:30 Fjölnir – UMFN
20:30 Keflavík – Grindavík
Þriðjudagur 19. júlí:
18:30 UMFN - Keflavík
20:30 Fjölnir - Grindavík
Miðvikudagur 20. júlí:
18:30 Fjölnir – Keflavík
20:30 UMFN – Grindavík
Dagskráin er af heimasíðu Njarðvíkur.