Birgir Már Bragason kosinn formaður á aukaaðalfundi kkdk í gær
Á aukaaðalfundi körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sem haldinn var í gær fimmtudag í K húsinu við Hringbraut, var ný stjórn kosin. Nokkrar breytingar voru gerðar á stjórn deildarinnar.
Birgir Már Bragason var kosinn formaður og tekur við að Hermanni Helgasyni sem var formaður á síðasta tímabili.
Kristján Guðlaugsson tekur við Særúnu Guðjónsdóttir sem gjaldkeri.
Í aðalstjórn bætist við nýr maður, Grétar Ólafsson. Grétar var lengi í stjórn knattspyrnudeildar og er því með mikla reynslu af stjórnarstörfum.
Gunnar Jóhannsson var kosinn varaformaður og verður einnig fjölmiðlafulltrúi körfuknattleiksdeildarinnar.
Hrannar Hólm ákvað að draga síg í hlé sökum anna í vinnu og verður mikill missir af honum úr stjórn. Hrannar hefur starfað lengi að körfuknattleik í Keflavík meðal annas sem formaður ásamt því að vera aðaldriffjöð í þátttöku okkar í Evrópukeppninni síðustu ár.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er annas skipuð eftirfarandi:
- Formaður: Birgir Már Bragason
- Varaformaður: Gunnar Jóhannsson
- Gjaldkeri Kristján Guðlaugsson
- Meðstjórnendur: Guðsveinn Ólafur Gestsson
- Einar Skaftasson
- Hermann Helgasson
- Særun Guðjónsdóttir
- Þórir Smári Birgisson
- Sigurður B. Magnússon
- Grétar Ólafsson
- Varstjórn: Brynjar Hólm Sigurðsson
- Jón Ben Einarsson
- Þorgrímur Árnasson