Birgir Már og fjölskylda færðu félaginu meistarabúninga
Fráfarandi formaður Birgir Már Bragasson kom færandi hendi á lokhófið sem haldið var á föstudaginn. Birgir og fjölskylda færðu félaginu meistarabúninga Keflavíkur frá upphafi í tröllvaxinni mynd en titlar Keflavíkur eru alls 38 talsins. Búningarnir verða svo hengdir upp í Toyotahöllinni við fyrsta tækifæri og kunnum við Bigga og fjölskyldu bestu þakkir fyrir.
Ljóst er að talsverðar breytingar verða á stjórn félagsins fyrir næsta tímabil því nýjir og ferskir menn eru að koma í stjórn deildarinnar. Aukaaðalfundur deildarinnar verður haldin á fimmtudaginn kemur.
Myndir frá lokahófinu eru komnar inn.
Siggi og Anna María hafa unnið flesta titla fyrir meistaraflokka Keflavíkur