Fréttir

Körfubolti | 3. janúar 2005

Birna sankar að sér verðlaunum

Birna Valgarðsdóttir var greinilega maður ársins hér í körfuboltabænum. Tvær tilnefningar bættust við þær sem fyrir voru komnar og rétt fyrir áramótin var hún útnefnd körfuboltakona ársins af KKÍ og síðan Íþróttamaður Reykjanesbæjar. Eins gott að hún hafi pláss fyrir alla þessa bikara! Til hamingju með þetta Birna, frábært ár að baki og vonandi annað svipað framundan.

Árið hennar Birnu - 2004:

  • Bikarmeistari
  • Deildarmeistari
  • Íslandsmeistari
  • 50 landsleikja markinu náð (sú þriðja í röðinni á Íslandi)
  • Stigahæst landsliðisins í sigri á Promotion Cup
  • Meistari Meistaranna
  • Hópbílameistari
  • Körfuboltamaður Keflavíkur
  • Íþróttamaður Keflavíkur
  • Landsleikur nr. 59 (aðeins 1 leikur til að jafna met Önnu Maríu)
  • Körfuboltakona ársins, KKÍ
  • Íþróttamaður Reykjanesbæjar