Birna Valgarðsdóttir valin körfuboltakona ársins af KKÍ
Um daginn var Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður valinn íþróttamaður Íslands 2002 af íþróttafréttamönnum landsins. Ólafur er vel að þeim titli kominn enda frábær íþróttamaður sem náði toppárangri í fyrra. Bróðir hans, Jón Arnór, er einnig mikill íþróttamaður og án vafa efnilegasti körfuboltamaður okkar Íslendinga um þessar mundir. Og reyndar er Jón Arnór miklu meira en efnilegur, því hann var valinn besti körfuboltamaður ársins í fyrra. Samkeppnin um sæmdarheitið “besti körfuboltamaður landsins” hefur þó harðnað til muna á síðustu tveimur árum og verður ekki auðvelt fyrir Jón Arnór að halda forystu, t.d. gagnvart Damon Johnson sem nýverið varð íslenskur . . .
En svo eru það stúlkurnar. Þau ánægjulegu tíðindi gerðust að Birna okkar Valgarðsdóttir var valin körfuknattleikskona ársins 2002 af KKÍ. Sérlega gaman var að heyra þau tíðindi fyrir okkur Keflvíkinga og vill heimasíðan og stjórn körfuknattleiksdeildarinnar nota tækifærið og óska Birnu til hamingju með þann heiður sem henni var sýndur. Birna hefur líklega aldrei verið betri en akkúrat núna og á hún hvern stórleikinn á fætur öðrum í stórskemmtilegu liði Keflavíkur.
Birna sem er aðeins 24 ára hefur leikið um 140 leiki fyrir Keflavík og skorað tæplega 1800 stig í þeim. Hefur hún með þeim árangri skotist upp í 5. sæti á lista yfir flest stig fyrir Keflavík, fram fyrir kempur eins og Erlu Reynis, Guðlaugu Sveinsdóttur, Olgu Færseth, Hönnu Kjartansdóttur og Möggu Stull. Birna er hins vegar í 3ja sæti yfir þær sem náð hafa hæstu meðalskori hjá Keflavík, aðeins Hanna Kjartansdóttir og Anna María Sveinsdóttir eru fyrir ofan.
En Birna getur margt fleira en skorað stig. Hún er sérlega “fit” og getur leikið allan leikinn af fítonskrafti. Hún er líklega landsins besti varnarmaður og grimmur frákastari. Birna þykir að vísu hafa all-sérstakan skotstíl, en samt sem áður er hún um 70% vítaskytta sem þykir ekki slæmt, og prýðileg 3ja stiga skytta. Birna er líka mjög "aggressívur" sóknarmaður og keyrir ósjaldan af krafti inn í varnir andstæðinga með góðum árangri. Heilt yfir má segja að hún sé mjög öflugur alhliða leikmaður.
Við vonum að Birna eigi eftir að leika marga marga leiki til viðbótar fyrir Keflavík og hjálpa liðinu til mikilla afreka. Við óskum henni enn og aftur til hamingju með nafnbótina.