Blikar í heimsókn í kvöld
Eftir venjubundið tap í Seljaskóla leikur Keflavíkurliðið aftur á heimavelli í kvöld, nú gegn Breiðabliki. Blikarnir eru sprækir með þá Pálma, Massey, Mirko og Jónas Ólason í aðalhlutverki. Reyndar er breiddin frekar lítil og ekki bætti úr sök að Friðrik Hreinsson hélt heim á Krók í síðustu viku. Einnig hefur það oft vakið furðu manna hve lítið Jón Arnar leikur sjálfur með, enda afar góður leikstjórnandi. Pálmi hefur skorað 20 stig að meðaltali í fyrstu leikjunum og hefur á undanförnum árum sannað sig sem einn besti og fjölhæfasti sóknarmaðurinn í deildinni.
Okkar lið er betur og jafnar mannað en lið Blikanna og eflaust eru strákarnir tilbúnir að leggja sig fram eftir slakan leik í síðustu umferð. Við vonumst því eftir góðri baráttu og grimmri vörn.