Bræður mætast í Kvöld
Keflavík mætir Skallagrím í Intersportdeildinni í kvöld. Skallgrímur sem eru nýliðar í deildinni og hafa farið vel að stað og er með góðan leikmannahóp. Þjálfarinn er reyndar enginn nýliði sjálfur Valur Ingimundarsson. Clifton Cook áður leikmaður Tindastóls hefur verið þar fremstur í flokki með 24.4 stig að meðaltali í deild. Jovan Zdravevski hefur komið vel út er með 23,4 stig og Nicholas Anderson er svo með 13 stig. Skallgrímur er í 3-5 í deildinni ásamt Keflavík og Fjölni með 10 stig. Keflavík hefur ekki alveg fundið taktinn í deildinni sem af er, en kemst vonandi á teinana aftur í kvöld. Leikur er í Sláturhúsinu við Sunnubraut kl. 19.15. Áfram Keflavik.