Breytingum að ljúka - heimasíðan fer brátt á flug !!
Ekki hefur verið sjáanlega mikið um að vera á heimasíðu okkar að undanförnu. Ein ástæða þess er að verið var að taka í notkun nýtt vefumsjónarkerfi "Conman 2.0" og tók smá tíma að græja hlutina. Í kjölfar breytinga sem ekki eru þó endilega sjáanlegar, verður sett trukk í síðuna og forsíðan einnig löguð til. Á næstu dögum ætti síðan umfjöllunin að vera komin í gang, enda nú Reykjanesmótið framundan og stutt í að átökin hefjist af alvöru.