Fréttir

Körfubolti | 3. mars 2004

Breyttar forsendur - auknar líkur á að Keflavík mæti Tindastól í 8-liða úrslitum

Eins og fram kemur á vef KKÍ, www.kki.is þá getur Tindastóll ekki náð fjórða sætinu í deildinni, jafnvel þó þeir vinni Njarðvík í síðasta leiknum. Ástæðan er sú að vegna þess að þeir brutu gegn reglugerð um launaþak þá lenda þeir ávallt fyrir neðan önnur lið, ef þau er jöfn að stigum. Ljóst er því að Njarðvík verður númer 4. Þetta getur haft áhrif á mótherja okkar, Keflvíkinga, því með þessu eru auknar líkur á að Tindastóll endi í 6. sætinu. Við skulum velta upp möguleikunum:

A: Keflavík vinnur Hauka og Tindastóll vinnur Njarðvík: Tindastóll nær 5. sætinu og við fáum Hauka

B: Keflavík vinnur Hauka og Njarðvík vinnur Tindastól: Haukar lenda í 5. sæti og við fáum Tindastól

C: Haukar vinna Keflavík og Tindastóll vinnur Njarðvík: Haukar lenda í 5. sæti og við fáum Tindastól

D: Haukar vinna Keflavík og Njarðvík vinnur Tindastól: Haukar lenda í 5. sæti og við fáum Tindastól

Af þessu má sjá að aðeins ef við vinnum Hauka og Tindastóll vinnur Njarðvík fáum við Hauka, annars Tindastól.

Sem sagt, spenna í vændum!