Bryndís Guðmundsdóttir hæst í netkosningu kkí
Úrslit netkosningar fyrir Stjörnuleik kvenna 2010 liggja fyrir hjá kkí. Að þessu sinni var það Bryndís okkar Guðmundsdóttir sem var með flest atkvæði, en hún hlaut 157 atkvæði. Í 2. og 3. sæti voru þær Margrét Kara Sturludóttir og Birna okkar Valgarðsdóttir með 140 atkvæði hvor.
Byrjunarliðin verða þannig skipuð:
Reykjanesið:
Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
Íris Sverrisdóttir - Haukum
Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík
Birna Valgarðsdóttir - Keflavík
Jacquline Adamshick - Keflavík
Þjálfari liðsins, Jón Halldór Eðvaldsson, mun svo velja sjö leikmenn úr liðum Keflavíkur, Njarðvíkur, Grindavíkur og Hauka.
Landið:
Hildur Sigurðardóttir - KR
Slavica Dimovska - Hamar
Margrét Kara Sturludóttir - KR
Jaleese Butler - Hamar
Signý Hermannsdóttir - KR
Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfar lið Landsins og mun velja næstu 7 leikmenn liðsins úr liðum KR, Fjölnis, Snæfells og Hamars.
Leikurinn verður háður þann 15. janúar næstkomandi í Ásgarði í Garðabæ.