Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 7. janúar 2010

Bryndís í Úrvalslið kvenna fyrri umferðar

Bryndís Guðmundsdóttir var í dag valin í Úrvalslið kvenna fyrir fyrri hluta Iceland Express-deildarinnar 2009-2010 tímabilið.
Því miður var hún eini Keflvíkingurinn í valinu í dag, en við óskum henni innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.
Eftirfarandi aðilar fengu viðurkenningu í dag:
 
Margrét Kara Sturludóttir úr KR og Justin Shouse úr Stjörnunni voru valin bestu leikmennirnir og þeir
Benedikt Guðmundsson úr KR og Teitur Örlygsson úr Stjörnunni bestu þjálfarar.

Úrvalslið kvenna:
Heather Ezell • Haukar
Margrét Kara Sturludóttir • KR
Sigrún Ámundadóttir • Hamar
Bryndís Guðmundsdóttir • Keflavík
Signý Hermannsdóttir • KR

Besti þjálfarinn: Benedikt Guðmundsson • KR
Dugnaðarforkurinn: Shantrell Moss • Njarðvík
 
Sigmundur Már Herbertsson besti dómarinn í bæði Iceland Express-deild karla og kvenna.

Úrvalslið karla:
Justin Shouse • Stjarnan
Jóhann Ólafsson • Njarðvík
Marvin Valdimarsson • Hamar
Hlynur Bæringsson • Snæfell
Fannar Freyr Helgason • Stjarnan

Besti þjálfarinn: Teitur Örlygsson • Stjarnan
Dugnaðarforkurinn: Semaj Inge • KR
Sú nýbreytni var ákveðin fyrir tímabilið að veita verðlaun fyrir bestu stuðningsmennina og í fyrri hlutanum
þóttu stuðningsmenn Snæfells og KR bera af.



Bryndís Guðmundsdóttir með viðurkenninguna ásamt Matthías Imsland, forstjóra Iceland Express