Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 20. janúar 2010

Búið að draga í 4-liða bikar

Fyrir stundu var dregið í 4-liða úrslit karla og kvenna í Subway-bikarkeppninni. Drengirnir fengu heimaleik gegn Snæfell, en stúlkurnar fengu leik á útivelli gegn 1. deildarliði Fjölnis. Leikirnir verða háðir 30. - 31. janúar næstkomandi.

Drátturinn var eftirfarandi:

Konur:
Fjölnir · Keflavík
Haukar · Njarðvík

Karlar:
Grindavík · ÍR
Keflavík · Snæfell

Kvennaleikirnir fara fram helgina 30.-31. janúar og karlaleikirnir 7. febrúar.