Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 29. júní 2011

Búið að draga í riðla Lengjubikarsins 2011

Í dag kl. 14 var dregið í riðla í Lengjubikar karla og kvenna fyrir komandi tímabil.

Á körfuknattleiksþinginu sem haldið var í maí var reglugerð um fyrirtækjabikar karla og kvenna breytt, þannig að núna verður dregið í riðla og liðum styrkleikaskipt eftir árangri þeirra í fyrra í deildarkeppninni. Hjá körlum leika fjögur lið saman í fjórum riðlum. Sigurvegarar hvers riðils leika til úrslita og fara í undanúrslit. Hjá konum verða tveir riðlar sem skipa fimm lið hvor og mætast sigurvegarar hvors riðils í úrslitum.

Leikir í Lengjubikarnum verða alltaf leiknir á sunnudögum fram að úrslitum en leikir í íslandsmótinu munu vera á fimmtudögum/föstudögum í mótaplaninu. Fyrsti leikdagur er 23. október og úrslitin verða helgina 2.-3. desember.

Konur

 

A-riðill: Keflavík · KR · Snæfell · Grindavík · Fjölnir

B-riðill: Njarðvík · Hamar · Haukar · Valur · Stjarnan

 

Leikin er einföld umferð og mætast efstu lið hvors riðils í úrslitaleik.

 

Karlar

A-riðill: KR · ÍR · Þór Þorlákshöfn · Skallagrímur

B-riðill: Grindavík · Haukar · Fjölnir · KFÍ

C-riðill: Snæfell · Stjarnan · Tindastóll · Breiðablik

D-riðill: Keflavík · Njarðvík · Valur · Hamar

 

Leikið er heima og heiman. Sigurvegarar hvers riðill fara í undanúrslit.

 

Leikdagar eru eftirfarandi:

 

Lengjubikar karla:

1. Leikdagur 23. okt

2. Leikdagur 30. okt

3. Leikdagur 6. nóv

4. Leikdagur 13. nóv

5. Leikdagur 20. nóv

6. Leikdagur 27. nóv

 

Úrslit 2. des og 3. des.

 

Lengjubikar kvenna:

1. Leikdagur 15. sep fimmtudagur

2. Leikdagur 18. sep sunnudagur

3. Leikdagur 21. sep miðvikudagur

4. Leikdagur 24 sep laugardagur

5. Leikdagur 26. sep mánudagur

 

Úrslitaleikur 30. september eða 1. október.