Búið að draga í undanúrslitum bikarkeppni yngri flokka
Dregið var í gær í 4. liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka, en þar eiga þátttökurétt 9. flokkur og eldri. Allir drengjaflokkar Keflavíkur eru dottnir úr keppni en öll stúlknaliðin eru komin í undanúrslit og greinilegt að kvenpeningur félagsins heldur fullum dampi sem aldrei fyrr. Óhætt er að segja að drátturinn hafi fallið með okkur í þetta skiptið þar sem við fengum þrjá heimaleiki af fjórum.
Keflvíkingar eiga eftirfarandi einvígi í vændum:
Unglingaflokkur kvenna: Keflavík - Njarðvík
Stúlknaflokkur: Keflavík - Njarðvík
10. flokkur stúlkna: Keflavík - Haukar
9. flokkur stúlkna: Haukar - Keflavík
Eftir á að setja niður leikdaga en leikirnir munu fara fram á tímabilinu 6. - 20. febrúar. Ákveðið hefur verið að úrslitahelgi bikarkeppninnar muni síðan fara fram á Ásvöllum helgina 26. og 27. febrúar í umsjón Hauka.