Fréttir

Körfubolti | 12. desember 2002

"Business as usual" hjá Keflavíkurstúlkum í undanúrslitum Kjörískeppninnar gegn ÍS

Það er ekki ofsögum sagt að kvennalið Keflavíkur leiki við hvurn sinn fingur þessa dagana. Í gærkvöldi náðu þær tólfta sigurleik sínum í röð í Kennaraháskólanum í undanúrslitum Kjörískeppninnar gegn ÍS-stúlkum. Stúdínur skoruðu fyrstu körfuna en Keflavík svaraði með 12 stigum í röð og þær litu ekki um öxl eftir það. Lokatölur voru 60-85 fyrir Keflavík.

Leikurinn hófst af krafti og fljótt komu yfirburðir Keflavíkur í ljós. Liðið er skipað betri leikmönnum sem allar eru frambærilegir sóknarmenn og eins liðsheildin sterkari. Þó gildir það sama um kvennaliðið og karlaliðið, ef einbeitingin hverfur þá myndast glufur í varnarleiknum. Akkúrat það gerðist í lok fyrri hálfleiks og byrjun þess seinni. ÍS með Meadow Overstreet í fararbroddi náði að minnka muninn í 6 stig, 41-47. Stúdínur komnar í stuð og allt virtist geta gerst.

En þá sýndi Keflavík styrk sinn. Góð liðsstjórn var upphafið, því leikhlé var tekið um leið og hætta virtist framundan. Í leikhléinu var greinilega lagt á ráðin um að hætta öllu dútli og leika af krafti. Og ekki þurfti að bíða lengi eftir árangrinum. Liðið gerði nákvæmlega það sem einkennir góð lið, það herti varnarleikinn um leið og þess þurfti. ÍS-stúlkur komust ekkert áleiðis og Keflavíkur-kvenna-hralestin brunaði framhjá og auðveldur 25 stiga sigur var í höfn.

Líklegast er ekki réttlátt að nefna einn leikmann öðrum fremur því besti "leikmaðurinn" er sjálf liðsheildin. Þó verður ekki hjá því komist að nefna Birnu Valgarðsdóttur, en hennar frammistaða í gær var til mikillar fyrirmyndar. Stúlkan sú leikur af mjög mikilli áræðni bæði í vörn og sókn og átti stórleik í gær. Hún virðist í feyknaformi, því ekkert dró af henni eftir því sem á leikinn leið. Annars má segja um alla leikmenn að þeir skiluðu sínu hlutverki vel í gær líkt og í öðrum leikjum leiktíðarinnar hingað til.

Sérlega gaman er að sjá liðið spila, því það geislar af leikgleði og sjálfstrausti. Vonandi helst það sem lengst fram eftir vetri og vonandi fara fleiri áhorfendur að láta sjá sig á leikjum þeirra, því stúlkurnar sýna um þessar mundir líklega betri kvennabolta en áður hefur sést hér á landi. Það hefur t.d. ekki oft gerst að kvennalið skori yfirleitt yfir 70 og jafnvel 80 stig í hverjum leiknum á fætur öðrum.