Fréttir

Körfubolti | 3. febrúar 2004

Dagskrá bikardagsins (og fréttir af Bikarbolum Lýsingar)

Leikirnir eru, líkt og í fyrr, kl. 13.00 og 16.30. Ástæðan er sú að RÚV sýnir beint frá leikjunum og þeir hafa þegar ákveðið aðra beina útsendingu á milli, líklega á þýska boltanum. Hvað um það, dagskráin gæti verið svona:

Föstudagur

  • 15.00 - 18.00 Forsala í K-húsi (miðarnir seldir ódýrara en á leikstað 800/300 í stað 1000/500)
  • Frekari upphitun eftir þörfum

Laugardagur

  • 11.00 Mæting á Duus - kaffi eða kaldur
  • 11.30 Rútuferð frá Duus (verð í rútu er 100 kr. báðar leiðir)
  • 12.30 Mæting í Höllina - 200 bolum dreift til stuðningsmanna í boði Lýsingar
  • 13.00 Kef - KR kvenna
  • 15.00 Pása - t.d. ferð í Húsdýragarðinn, göngutúr, ferð á kaffi- eða öldurhús, matur osfrv.
  • 15.00 Seinni rútuferðin - fyrir þá sem ekki komast fyrr (verð í rútu er 100 kr. báðar leiðir)
  • 16.00 Mæting í Höllina
  • 16.15 Kalli Bjarna Pop-Idol tekur lagið
  • 16.30 Kef - Nja í karla
  • 17.15 Hálfleikur - 100 þús. kr. skotkeppni Lýsingar
  • 18.00 Verðlaunaafhending - We are the Champions sungið (bara spurning hver???)
  • 19.00 Haldið til Keflavíkur
  • Seinna um kvöldið: Sigurhátíð í Reykjanesbæ (Stapa) - bara spurning hverjir fagna???

Bikarbolir

  • Athuga ber að Lýsing sem er styrktaraðili keppninnar mun úthluta "bikarbolum" í litum þeirra félaga sem taka þátt. 200 heppnir Keflvíkingar munu fá úthlutað bolum ókeypis, þeir 200 sem fyrstir mæta!!