Dagskrá yngri flokka um helgina o.fl.
Nú um helgina leika minnibolti 10 ára karla, 11 ára kvenna og 10. flokkur kvenna í 4. og síðastu umferð Íslandsmótsins. Tvö af þessum mótum verða á heimavelli.
Um sl. helgi átti 7. fl. ka. að leika í B-riðli í Vestmannaeyjum en mótið var flautað af vegna veðurs. 9.fl. kv. vann alla sína leiki með miklum yfirburðum á heimavelli og eru komnar í undanúrslit. 10.fl.ka. er einnig kominn í undanúrslit þrátt fyrir naumt tap gegn bæði UMFN og KR. Þeir unnu Fjölni og það dugar þeim en eftir er að spila leikinn gegn Breiðablik sem var flautaður af eftir skamma stund þar sem einn leikmaður þeirra fótbrotnaði illa í upphafi leiks og eðlilega var engin stemming fyrir því að klára leikinn af þeim sökum.
Mb. 10. ára karla keppir í A-riðli um helgina og fer mótið fram í Njarðvík. Drengirnir hafa leikið í A-riðli í allan vetur en ómögulegt að segja hvaða lið er líklegast til sigurs þar sem leikir vetrarins hafa fallið á ýmsa vegu. Mótið hefst á laugardag kl. 10.00 og lýkur með nágrannaslag milli okkar stráka og UMFN á sunnudag kl. 13.00. Það gæti orðið úrslitaleikur. Sigurvegarar umferðarinnar verða krýndir Íslandsmeistarar og vonandi mæta strákarnir ákveðnir til leiks og gera atlögu að titlinum.
Dagskrá mótsins; http://www.kki.is/mot/mot_1500003183.htm
Mb. 11. ára kvenna keppir í A-riðli og eru stelpurnar ósigraðar í vetur. Þær hafa því unnið sér inn heimavallarréttinn í síðustu umferðinni og leika í Toyota höllinni. Mótið hefst á laugardagsmorgun kl. 9.00 og lýkur með síðasta leik kl. 14.00 á sunnudag. Sigurvegarar umferðarinnar verða krýndir Íslandsmeistarar og eru stelpurnar staðráðnar í að landa titlinum.
Dagskrá mótsins; http://www.kki.is/mot/mot_1500003181.htm
10. flokkur kvenna keppir sem fyrr með tvö lið í A-riðli og hafa þau verið að bítast um sigur í mótunum í vetur. Leikið verður í Heiðarskóla og hefst mótið á föstudag kl. 16.00
Sjá dagskrá mótsins; http://www.kki.is/mot/mot_1500003171.htm
Fjögur efstu lið umferðarinnar fara í undanúrslit Íslandsmótsins sem verða leikin í Laugardalshöll 17. – 26. apríl.
Unglingaráð KKDK sendir krökkunum dúndrandi baráttukveðjur
Áfram Keflavík