Damon er kóngurinn
Eins og við var að búast telja netverjar að Damon Johnson sé besti Kaninn sem leikið hefur fyrir Keflavík. Hlaut hann yfirburðakosningu og fékk 60% atkvæða. Næstir á eftir honum komu Tim Higgins, Calvin Davis, Ed Saunders og Derrick Allen. Ljóst er að þessir fimm fræknu leikmenn væru illviðráðanlegir ef þeir kæmu saman í einu liði (ef miðað er við alla á sínum besta tíma). Damon er svo fjölhæfur að hann myndi taka bakvarðarstöðuna ásamt Tim, sem myndi negla niður nokkrum "spjaldið oní" en hinir þrír gætu skipt með framherja- og miðherjastöðunum, Ed líklegast vera mest úti á vellinum, þar sem hann gat skotið þristum, en Derrick og Calvin voru meira inní teignum. Ekki slæmt lið þetta!
Eins og stendur er Damon leikmaður í efstu deild á Spáni, Calvin er einn sá besti í Bretlandi og Derrick verður annað hvort í efstu deild í Þýskalandi eða Frakklandi á næsta ári eftir frækna frammistöðu í Evrópukeppninni í vetur. Ed lék síðast í NBDL í Ameríku, en er meiddur sem sakir standa. Tim er líklega hættur körfuboltaiðkun, enda kominn vel á fimmtugsaldurinn.